European Commission logo
Vytvořit účet
Může vybrat více slov, slova oddělujte čárkou

EPALE - Elektronická platforma pro vzdělávání dospělých v Evropě

Zprávy

Stafræn samfélög: Lok verkefnis

TreeImage.
Nýheimar Þekkingarsetur

Nú fer að líða að lokum verkefnisins Digital skills and competences of local communities in rural areas. Verkefnið hlaut styrk árið 2020 frá landsskrifstofu Íslands en Nýheimar þekkingarsetur stýrir verkefninu. Samstarfsaðilar verkefnisins eru sex talsins og koma frá fimm Evrópulöndum, þ.e. Búlgaríu, Hollandi, Svíþjóð, Spáni og Íslandi en þátttakendur frá Íslandi eru tveir, Nýheimar þekkingarsetur og Þekkingarnet Þingeyinga.

Verkefnið miðar að því að efla stafræna færni íbúa í sveitarfélögum á landsbyggðinni og í dreifbýli. Áhersla var lögð á eldri borgara og leiðbeinendur/umönnunaraðila er starfa með eldri borgurum og styðja þá í daglegu lífi. Verkefnið fól í sér greiningu á opinberri þjónustu á netinu og þarfagreiningu meðal eldri borgara. Spurningakannanir voru lagðar fyrir markhópinn þar sem eldri borgarar voru beðnir um að meta stafræna hæfni sína sem og þörf og áhuga á að nýta sér þjónustu á netinu. Niðurstöður kannana ákvörðuðu efnistök kennslumyndbanda og leiðbeininga sem samstarfsaðilar unnu. Um er að ræða rafrænar leiðbeiningar um notkun opinberrar þjónustu á netinu. Efnið inniheldur upplýsingar um þjónustu sem boðið er upp á í viðkomandi landi auk þess sem kennslumyndbönd sýna skref fyrir skref hvar og hvernig má nýta þjónustuna. Kennsluefnið er byggt á raunverulegum dæmum og sýnir hvernig nýta má stafrænar lausnir til að sinna hversdagslegum erindum og til afþreyingar. Markmið kennsluefnisins er að efla sjálfstraust eldri borgara í notkun internetsins og þannig bæta lífsgæði nú þegar þjónusta er í síauknum mæli á vefnum. Enn fremur var unnin handbók sem er hugsuð til hagnýtingar fyrir þá sem styðja eða geta stutt við stafræna hæfni eldri íbúa. Í handbókinni er aðferðum, verkfærum og dæmum miðlað í þeim tilgangi að virkja og þróa færni leiðbeinenda og veita stuðning á sviði stafrænnar hæfniþjálfunar.

Lokafundur verkefnisins var haldinn í Nýheimum, Höfn í Hornafirði í byrjun septembermánaðar. Samstarfsaðilar halda svæðisbundna kynningarviðburði þar sem afurðir verkefnisins eru kynntar fyrir haghöfum. Afurðir verkefnisins hafa verið gerðar aðgengilegar á heimasíðu verkefnisins https://www.digital-communities.eu/

Login (2)

Chcete napsat článek?

Neváhejte a udělejte to!

Klikněte na odkaz níže a začněte psát nový článek!

Nejnovější diskuze

Profile picture for user MonikaSm.
Monika Smekalová

Důležitost základních dovedností v rámci Evropského roku dovedností

Investice do základních dovedností v rámci Evropského Roku dovedností jsou nutné, aby se jeho cíle splnily.

Více
Profile picture for user MonikaSm.
Monika Smekalová

EPALE Diskuse: Budování inkluzivní jazykové rozmanitosti v Evropě

Učení se cizích jazyků je klíčem nejen pro sociální začlenění, mobilitu pracovní síly, ale také přispívá k soudržné a kulturně obohacené Evropě. Zúčastněte se naší další diskuse a diskutujte o roli jazykového vzdělávání v dnešní Evropě!

Více
Profile picture for user MonikaSm.
Monika Smekalová

Nový web EPALE – problémy a dotazy

České národní středisko EPALE by vás, členy komunity EPALE, chtělo požádat, abyste v této diskuzi sdíleli zjištěné nedostatky nebo vaše dotazy, týkající se například vkládání nového obsahu na platformu.

Více