Menntabúðir á netinu - 26. mars 2020


Við vekjum athygli á menntabúðum á netinu fimmtudaginn 26. mars kl. 15.00-16.30 sem skipulagðar eru af góðum kollegum af Menntavísindasviði og Háskólanum á Akureyri í samvinnu við aðila hjá Nýsköpunarmiðju menntamála við Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Menntamálastofnun, Kennarasamband Íslands og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Þátttaka er öllum opin án skráningar – aðeins þarf að opna dagskrána 26.3. og velja sér vefstofu að vild. Þátttakendur geta tekið þátt í allri dagskránni eða hluta hennar.
Það eru einnig enn opin rými fyrir þitt framlag. Leggðu þitt að mörkum og kynntu og / eða ræddu um aðferð, viðfangsefni sem þú ert að glíma við eða hefur fundið góða lausn á. Þá skráir þú þig á lausri vefstofu í dagskránni
Menntabúðirnar fara fram með Zoom fjarfundabúnaði (Zoom-leiðbeiningar hér).
Nánari upplýsingar: Sólveig Jakobsdóttir, Sólveig Zophoníasdóttir og Hróbjartur Árnason
Endilega deilið þessum pósti og viðburðinum af fésbók inn í ykkar tengslanet: https://www.facebook.com/events/1329867233866967/