Þróun gæða í ráðgjöf fullorðinna - vefstofa 25. janúar
![Profile picture for user Margret Sverrisdottir.](/sites/default/files/styles/icon/public/pictures/picture-989-1415872946.jpg.webp?itok=xx0lJnqY)
Norræna tengslanetið um ráðgjöf býður til vefstofu um þemað gæðaþróun í starfsferilsráðgjöf fyrir fullorðna. Hvernig getum við þróað gæði í starfsferilsráðgjöf fyrir fullorðna?
Í vefstofunni færð þú að heyra um þróun gæðamála og fá innblástur í gegnum dæmi frá Færeyjum og Noregi.
Í Noregi hefur verið þróaður gæðarammi og í vefstofunni verður farið yfir reynsluna og ávinninginn af notkun hans þar í landi.
Í Færeyjum hefur verið komið á fót vettvangi til að þróa gæði í starfsferilsráðgjöf í formi samstarfsnets þverfaglegra ráðgjafa úr ólíkum geirum.
Áherslur
Hver er staða gæðaþróunar í löndunum?
-
- Reynsla
- Lærdómur hingað til og helstu niðurstöður
- Leiðin fram á við
- Þekkingarmiðlun
Tímasetning
25. janúar kl. 13:30 – 14:30, skráningarfrestur er til 23. janúar – skráning hér
Markhópur
- Fólk sem vinnur að gæðamálum á kerfisstigi (leiðtogar/stjórnendur) og þau sem vinna við starfsferilsráðgjöf og ráðgjöf sem tengist störfum og námi.
- Öll sem eru forvitin um gæðaþróun á sviði ráðgjafar
Markmið vefstofu
- Að skiptast á þekkingu til innblásturs
Fyrirlesarar
- Ingjerd Espolin Gaarder, forstöðumaður deildar um gæði í ævilangri ráðgjöf hjá HK-dir (Norwegian Directorate for higher Education and Skills)
- Maiken Skarðenni, ráðgjafi hjá miðstöð starfsferilsráðgjafar og nemaráðgjafar í Færeyjum
- Terji Beder, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu í Færeyjum
Tungumál
Enska - Hér er hlekkur með upplýsingum á ensku: https://nvl.org/content/Webinar-Quality-developments-in-guidance-for-adults
Umsjón: Fjóla María Lárusdóttir, NVL tengiliður á Íslandi
Interesting
Interesting