EPALE - Electronic Platform for Adult Learning in Europe

EPALE viðurkenningar

EPALE er samfélag fólks sem stuðlar að þróun fullorðinsfræðslu og menntunar almennt. Við viljum verðlauna fólkið sem tekur virkan þátt í samfélaginu og gerir EPALE vettvanginn að því sem hann er í dag.

Hér geta EPALE notendur fengið viðurkenningu fyrir sitt framlag til EPALE samfélagsins.

Hvernig er hægt að fá stig og vinna sér inn viðurkenningu frá EPALE?

Einstaklingar geta fengið viðurkenningar fyrir að birta efni á EPALE vefsíðunni. 

Með því að vera virk og birta greinar, viðburði, fréttir eða taka þátt í samræðum er hægt að fá sérstakar viðurkenningar. 

Viðurkenningar eru veittar á sex mánaða fresti til virkustu meðlima EPALE samfélagsins.

Hvernig eru stigin reiknuð út?
  • Setja inn efni - 100 stig fyrir hverja bloggfærslu, grein, umræðu, viðburð og tilkynningar um stofnun hópa og leit að samstarfsaðilum
  • Skrifa athugasemd - 20 stig fyrir hverja athugasemd
  • Líka við efni - 5 stig

 

Það er einnig hægt að vinna sér inn stig ef annar meðlimur samfélagsins veitir þér athygli. 
Þá er mikilvægt að deila efninu þínu og bjóða vinum og samstarfsaðilum að taka virkan þátt á EPALE vettvangnum.

  • Fá athugasemdir - 40 stig fyrir hverja athugasemd
  • Að líka við efnið þitt - 10 stig fyrir hvert "læk"
EPALE viðurkenningar

Með virkri þátttöku í EPALE samfélaginu getur þú unnið þér inn stig og fengið viðurkenningu.

Viðurkenningar skiptast í þrjá flokka:

 

contributor.

 Þitt framlag til EPALE samfélagsins (250 stig)

Þú tekur virkan þátt í EPALE samfélaginu.

 

collaborator.

 Þitt framlag til samstarfs á EPALE vettvangnum (500 stig)

Þú ert uppbyggjandi og færð EPALE vettvanginn til að blómstra.

 

hero.

 Hetja EPALE samfélagsins (1000 stig)

Þátttaka þín á EPALE vettvangnum er frábær! Fullorðinsfræðsla og menntun er þitt áhugamál og þú ert óþreytandi að koma efni um það til skila á EPALE vefsíðunni.

Þú mátt vera stolt(ur) af EPALE viðurkenningunni og framlagi þínu til EPALE samfélagsins.